Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   sun 15. febrúar 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Chiellini: Skömmumst okkar að vera partur af þessari deild
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Giorgio Chiellini, goðsagnakenndur fyrrum varnarmaður Juventus og núverandi stjórnandi hjá félaginu, var æfur út í dómgæsluna í 3-2 tapi liðsins gegn Inter í ítölsku deildinni í gærkvöldi.

Luciano Spalletti þjálfari neitaði að ræða við fjölmiðla í mótmælaskyni en Chiellini vildi ólmur tjá sig.

„Það sem gerðist í dag er algjörlega óásættanlegt. Það eru ónýtar reglur í þessari deild, við erum augljóslega komnir langt yfir öll þolmörk. Í dag er ekki rætt um fótbolta, heldur dómgæsluna, og það er sorglegt," sagði Chiellini.

„Það er óásættanlegt að dómarinn geti eyðilagt svona leik. Gæðastig dómara í þessari deild er óásættanlegt. Þetta er það sem við erum að sýna heiminum, þetta er það sem fólk hugsar um þegar það hugsar um ítalskan fótbolta. Við verðum að breyta kerfinu hjá okkur. Við verðum að breyta reglunum, við megum ekki leyfa þessu að halda áfram í sama fari.

„Félög í deildinni hafa kvartað undan kerfinu og dómgæslunni allt tímabilið. Það er ekki boðlegt að halda svona áfram. Þetta er gjörsamlega fyrir neðan allar hellur.

„Þetta er vandræðalegt fyrir ítalskan fótbolta. Við hjá Juventus skömmumst okkar fyrir að vera partur af þessari deild. Þetta er hvorki í fyrsta né annað skiptið sem svona mistök ráða úrslitum í leikjum hjá okkur og öðrum liðum á þessu deildartímabili."


Leikmenn og stjórnendur Juventus kvörtuðu undan fleiri atvikum í dómgæslunni þar sem þeir töldu bæði mörk Inter hafa verið ólögleg. Samkvæmt þeim braut Luis Henrique af sér í aðdraganda fyrra marksins og átti aukaspyrnan sem seinna markið var skoruð í kjölfarið af aldrei að vera dæmd.

   15.02.2026 06:00
Sjáðu atvikið: Spalletti, Chiellini og Comolli brjáluðust


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner