Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
banner
   sun 15. febrúar 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Emery: VAR er nauðsynleg tækni
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Unai Emery þjálfari Aston Villa svaraði spurningum eftir tap á heimavelli gegn Newcastle United í enska bikarnum í gær.

Chris Kavanagh og dómarateymi hans klúðruðu stórum ákvörðunum í leiknum og hafa fengið mikla gagnrýni fyrir. Helstu vafaatriðin hölluðu öll gegn Newcastle, sem tókst þrátt fyrir það að fara með sigur úr býtum.

Marco Bizot, markvörður Aston Villa, fékk beint rautt spjald þegar hann fór langt út úr vítateignum í skógarhlaup og braut klaufalega af sér sem aftasti varnarmaður. Newcastle nýtti sér liðsmuninn til að skora þrjú mörk og vinna leikinn, en mörkin hefðu verið fleiri ef ekki fyrir stórfurðulegar dómaraákvarðanir.

Villa leiddi 1-0 þegar Bizot lét reka sig af velli undir lok fyrri hálfleiks.

„Marco Bizot er alltaf einbeittur og góður þegar hann fær tækifæri á milli stanganna en í dag gerði hann mistök sem hann verður að læra af," sagði Emery meðal annars eftir lokaflautið, áður en hann snéri sér að VAR-kerfinu.

VAR-tæknin er ekki notuð í 32-liða úrslitum bikarsins en það voru nokkur stór vafaatriði í leiknum í dag, þar sem Lucas Digne varnarmaður Villa var heppinn að fá ekki dæmda vítaspyrnu á sig og seinna gult spjald. Þá var Tammy Abraham í rangstöðu þegar hann skoraði fyrsta mark leiksins.

„Í dag fengum við staðfestingu á því hvers vegna VAR er mikilvægur partur af leiknum í dag. Þetta er nauðsynleg tækni til þess að hjálpa dómurunum."

   14.02.2026 21:01
Howe kvartaði undan skrýtinni dómgæslu

Athugasemdir
banner
banner