Fotbolti.net
15.02.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Snéri aftur rúmu ári eftir hjartastopp

Snéri aftur rúmu ári eftir hjartastopp
Canon

Mynd: Watford

Miðjumaðurinn Edoardo Bove snéri aftur til vallar í fyrsta sinn eftir rúmt ár frá keppni vegna hjartastopps.
Bove var í byrjunarliði Fiorentina þegar hann fékk hjartastopp á útivelli gegn Inter. Farið var með leikmanninn beint á spítala og leiknum frestað.

Bove jafnaði sig eftir hjartastoppið og er núna með bjargráð en samkvæmt reglum ítalska boltans þá mega leikmenn ekki spila með slíka græju. Ítalska deildin fylgir 0% áhættustefnu þegar kemur að hjartavandamálum fótboltamanna.

Bove skrifaði því undir samning við Watford í Championship deildinni og fékk að koma við sögu í fyrsta sinn í 2-2 jafntefli gegn Preston North End í gær. Bove, sem er 23 ára gamall, spilaði síðustu fimm mínútur leiksins.

Ítalinn þótti gríðarlega mikið efni áður en hann fór í hjartastopp og var lykilmaður upp yngri landsliðin.

Bove er fæddur og uppalinn í Róm og lék á láni hjá Fiorentina þegar hann fór í hjartastopp.

Frá Roma til Watford (Staðfest)
TENGT EFNI

Frá Roma til Watford (Staðfest)

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.