Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   mið 15. mars 2023 13:30
Elvar Geir Magnússon
Kroenke feðgar orðnir stjórnarformenn Arsenal
Kroenke feðgar, Josh og Stan.
Kroenke feðgar, Josh og Stan.
Mynd: Getty Images
Stan Kroenke eigandi Arsenal og sonur hans Josh Kroenke eru stjórnarformenn í nýju stjórnarskipulagi félagsins. Tim Lewis verður starfandi varaformaður eftir að hafa verið í stjórn félagsins síðan 2020.

Bandaríkjamaðurinn Stan Kroenke er 75 ára en hann keypti 9,7 hlut í Arsenal 2007, eignaðist meirihluta í félaginu 2011 og svo 100% eignarhald 2018.

Hann segir breytingarnar „staðfesta enn frekar skuldbindingu fjölskyldunnar við þetta frábæra félag".

Í yfirlýsingu segir að stöðugleiki hafi aldrei verið mikilvægari í fótboltaheiminum og þetta sé góður tímapunktur til að skerpa á áherslum.

„Markmið okkar og metnaður munu aldrei dvína - að tefla fram liðum sem keppa um titla á hæsta stigi og leiða félagið á þann hátt að það hvetur ástríðufulla stuðningsmenn okkar um allan heim," segir Kroenke.

Lífið leikur við Arsenal sem er með fimm stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar þegar ellefu umferðir eru eftir.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 0 0 0 0 0 0 0 0
2 Aston Villa 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Bournemouth 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Brentford 0 0 0 0 0 0 0 0
5 Brighton 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Chelsea 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Crystal Palace 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Everton 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Fulham 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Ipswich Town 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Leicester 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Liverpool 0 0 0 0 0 0 0 0
13 Man City 0 0 0 0 0 0 0 0
14 Man Utd 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Newcastle 0 0 0 0 0 0 0 0
16 Nott. Forest 0 0 0 0 0 0 0 0
17 Southampton 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Tottenham 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Luton 38 6 8 24 52 85 -33 26
19 Burnley 38 5 9 24 41 78 -37 24
19 West Ham 0 0 0 0 0 0 0 0
20 Sheffield Utd 38 3 7 28 35 104 -69 16
20 Wolves 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner