Fotbolti.net
15.04.19 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Zidane: Kemur enginn í staðinn fyrir Ronaldo

Zidane og Ronaldo.

Zidane og Ronaldo.

Canon

Mynd: Getty Images

Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, segir að ómögulegt sé að fylla skarð Cristiano Ronaldo sem yfirgaf Madrídinga í fyrra og gekk í raðir Kuventus.
„Það er sama hvern þú kaupir. Það kemur enginn í stað Cristiano. Hann hefur yfirgefið félagið og þú getur keypt gæða leikmenn en þeir munu ekki afreka það sama og hann gerði. Þannig er fótboltinn," segir Zidane.

Það er fróðlegur sumargluggi framundan hjá Real Madrid og búist við miklum breytingum á hópnum. Zidane segist vilja halda franska sóknarmanninum Karim Benzema.

„Hann er mikilvægur og getur spilað með hverjum sem er. Hann færir góða leikmenn saman og gerir þá jafnvel enn betri. Hann er ekki hefðbundin 'nía', hann getur spilað víðar. Hann getur bæði skorað og aðstoðað aðra."

Real Madrid á leik gegn Leganes í La Liga í kvöld, í beinni á Stöð 2 Sport 3.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Villarreal11012
9Celta11012
10Alaves11-212
11Vallecano10-512
12Getafe11-812
13Deportivo10011
14Espanyol11-111
15Osasuna10-1011
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.