Fotbolti.net
15.04.23 - 18:57
Elvar Geir Magnússon

Kjartan Henry: Vuk frábær og við erum að tengja vel

Auglýsing
Kjartan Henry: Vuk frábær og við erum að tengja vel
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kjartan Henry Finnbogason lagði upp sigurmark FH gegn Stjörnunni í 2. umferð Bestu deildar karla. Leikið var á varavelli FH, frjálsíþróttavellinum í Kaplakrika.

„Við tökum hattinn ofan fyrir fólkinu sem hjálpaði til við að koma þessum leik á. Þessi sigur er tileinkaður þeim sjálfboðaliðum sem hafa hjálpað við að gera þetta nokkuð huggulegt," sagði Kjartan eftir leik.
Hann var ekki alveg tilbúinn að taka undir að völlurinn væri skárri en hann lítur út fyrir að vera.

„Það eru þín orð en það er alveg hægt að spila fótbolta á vellinum. Stjörnumenn gerðu það mjög vel í fyrri hálfleik, við gerðum þetta betur í seinni hálfleik. 1-0 sigrar eru sætastir."

Kjartan viðurkennir að leikmenn hafi verið búnir undir þessar aðstæður, leikstíllinn og planið hafi ekki verið það sama og fyrir hefðbundinn leik.

Vuk Oskar Dimitrijevic skoraði sigurmarkið í dag en hann tryggði FH stig gegn Fram í fyrstu umferðinni.

„Vuk frábær og við erum að tengja vel, hann fékk víti fyrir mig í síðasta leik. Ein af ástæðum þess að ég kom hingað var til að gefa af mér og hjálpa ungu strákunum. Vuk er geggjaður fótboltamaður og það eru fleiri efnilegir hérna."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.