Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 15. maí 2021 08:40
Fótbolti.net
Max, Lengjan, Grímsi og enski á X977 í dag
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það verður af nægu að taka í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag milli 12 og 14. Íslenski boltinn verður í aðalhlutverki.

Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir komandi umferð í Pepsi Max-deildinni og Rafn Markús Vilbergsson rýnir í 2. umferð Lengjudeildarinnar.

Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, verður á línunni.

Þá mun Kristján Atli Ragnarsson ræða um Meistaradeildarbaráttuna í enska boltanum, sigur Manchester City og bikarúrslitaleik Chelsea og Leicester.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner