Fotbolti.net
15.05.22 - 14:30
Ívan Guðjón Baldursson

Mike Jackson: Fáránleg ákvörðun - Sjáðu atvikið

Mike Jackson: Fáránleg ákvörðun - Sjáðu atvikið
Canon

Mynd: Getty Images

Michael Jackson, bráðabirgðastjóri Burnley, var svekktur eftir 1-0 tap gegn Tottenham í dag. Harry Kane gerði eina mark leiksins úr vítaspyrnu og var Jackson ósáttur með ákvörðun dómarateymisins.

Vítaspyrna var dæmd eftir að VAR herbergið sagði Kevin Friend dómara að koma að skjánum til að skoða þegar boltinn fór í hendi Ashley Barnes innan vítateigs.

Þetta var afar óheppilegt atvik þar sem Barnes gat lítið sem ekkert gert til að koma í veg fyrir að fá boltann í handlegginn. Það voru ekki margir sem tóku eftir atvikinu og var boltinn í leik í góða mínútu áður en vítaspyrna var dæmd.

„Ég sá margt jákvætt í dag og þetta gekk mjög vel fyrir utan þessa einu ákvörðun. Ég er búinn að horfa á endursýningu og þetta er fáránleg ákvörðun miðað við samhengið," sagði Jackson.

„Hann var með handleggina í eðlilegri stöðu miðað við að það var nýbúið að toga í hann, það var enginn sem heimtaði vítaspyrnu þegar atvikið átti sér stað. Ég skil ekki hversu langt aftur í tímann þeir geta farið til að dæma eftir föst leikatriði, þetta er fáránlegt.

„Ashley Barnes var frábær í dag, hann var óheppinn að fá vítaspyrnu dæmda á sig og skora ekki."

Burnley er í bullandi fallbaráttu og segist Jackson ekki vera að hugsa um sína eigin framtíð, hann sé einungis einbeittur að næstu leikjum.

Sjáðu atvikið

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.