„Mér líður ekki nógu vel með byrjunina hjá okkur í Bestu deildinni. Þetta snýst um að ná í stig og okkur hefur ekki tekist að gera nóg af því í byrjun móts, þá líður manni ekki nógu vel með akkúrat það. En aftur á móti er Þór/KA vel mannað, með marga góða leikmenn og mun snúa þessu við, það er engin spurning," segir Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA, við Fótbolta.net.
Þór/KA er með tvö stig eftir fjóra leiki í Bestu deildinni og framundan er leikur gegn Stjörnunni í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Sá leikur hefst klukkan 18:00 í dag og fer fram á VÍS-vellinum á Akureyri.
Þór/KA er með tvö stig eftir fjóra leiki í Bestu deildinni og framundan er leikur gegn Stjörnunni í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Sá leikur hefst klukkan 18:00 í dag og fer fram á VÍS-vellinum á Akureyri.
Lestu um leikinn: Þór/KA 0 - 0 Stjarnan
„Fyrir okkur er þessi leikur hreint blað, ný keppni, möguleiki á fyrsta sigrinum og vonandi er hægt að gera gott mót í þessari keppni."
Liðin mættust í deildinni fyrir rúmri viku síðan, sá leikur endaði með 2-2 jafntefli eftir að Stjarnan komst í 0-2 forystu. Markið undir lokin, var það eins nálægt sigurtilfinningu og jantefli getur verið?
„Sú sigurtilfinning sem við höfum upplifað á þessu tímabil hefur komið eftir jafntefli. Náum að jafna bæði gegn FH og Stjörnunni. Það var mjög sætt að ná að jafna þá leiki í restina og vonandi eitthvað sem við getum tekið með inn í bikarleikinn."
„Það er erfitt að lesa nákvæmlega í hvað hitt liðið er nákvæmlega að fara gera á þessum tímapunkti. Það hefur verið spilað þétt í deildinni og þessi leikur kemur inn á milli umferða. Það er stutt á milli leikja hjá báðum liðum. Við verðum að hugsa um okkur sjálf og reyna spila eins góðan leik og hægt er."
Fyrirliðinn, Hulda Björg Hannesdóttir, verður að öllum líkindum ekki meira með á tímabilinu eftir að hafa slitið liðband.
„Hún er frábær leikmaður sem öll lið í deildinni myndu sakna, en það kemur maður í manns stað, við erum með breiðan hóp af góðum leikmönnum og við leysum þetta eins og annað sem kemur upp," segir Alli Jói.

