15.06.05 - 04:21
Roy Carroll til West Ham (Staðfest)

Roy Carroll

Roy Carroll

West Ham hafa skrifað undir samning við Norður-Írska landsliðsmarkvörðinn Roy Carroll. Hann fékk samning sinn ekki endurnýjaðan hjá Manchester United eftir tímabilið en í staðinn fékk liðið Edwin van der Sar til sín.
Árið 2001 borgaði United 2,5 milljónir punda fyrir hann en Carroll barðist um byrjunarliðssætið við marga markmenn áður en hann fékk loksins tækifærin. Á nýafstiðnu tímabili var Carroll harðlega gagnrýndur en hann þótti gera of mikið af byrjendamistökum.
Alan Pardew stjóri Hamranna var ánægður með að klófesta Carroll: "Meiðsli Jimmy Walker í úrslitaleik umspilsins voru mikið áfall fyrir okkur" sagði Pardew en Walker meiddist afar illa á fæti og verður frá keppni í marga mánuði. "Ég dreif mig því í að bæta það upp með því að fá Roy Carroll sem hefur sannað sig sem markmaður i Úrvalsdeildinni."
Pardew vonast eftir því að fá til sín þrjá til fjóra leikmenn til viðbótar fyrir komandi
átök í Úrvalsdeildinni.