Fotbolti.net
15.06.05 - 08:47
Hafliði Breiðfjörð

Kelvin Davis til Sunderland (Staðfest)

Kelvin Davis

Kelvin Davis

Canon
Sunderland gengu í gær frá kaupum á Kelvin Davis markverði Ipswich Town en kaupverðið var 1,25 milljón punda. Davis sem er 28 ára gamall gerir fjögurra ára samning við Sunderland sem leikur í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
Davis er fjórðu kaup Sunderland í sumar og Mick McCarthy stjóri liðsins er hæstánægður: ,,Þetta er magnaður samningur fyrir Sunderland," sagði hann.

,,Kevin hefur spilað í úrvalsdeildinnni áður með Wimbledon og hann hefur spilað eitthvað nærri 40 leikjum á tímabili undanfarin fjögur ár. Hann var kjörinn besti markvörðurinn í deildinni á síðustu leiktíð og er, nú 28 ára gamall, á besta aldri fyrir markvörð."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.