15.06.05 - 11:31
Hafliði Breiðfjörð
Olivier Kapo lánaður til Monaco (Staðfest)




Juventus lánuðu í dag miðvallarleikmanninn Olivier Kapo til Monaco sem leikur í frönsku deildinni en lánssamningurinn er til eins árs. Kapo er gamall franskur landsliðsmaður en hann hefur skorað þrjú mörk í níu landsleikjum fyrir Frakkland.
Hann lék aðeins 14 leiki fyrir Juventus á leiktíðinni og þar af 12 þeirra sem varamaður.
Kapo er 24 ára gamall og hóf feril sinn sem atvinnumaður hjá Auxerre í Frakklandi árið 1999. Þar var hann í fimm leiktíðir áður en hann gekk í raðir Juventus í fyrra.
Kapo er 24 ára gamall og hóf feril sinn sem atvinnumaður hjá Auxerre í Frakklandi árið 1999. Þar var hann í fimm leiktíðir áður en hann gekk í raðir Juventus í fyrra.
