Fotbolti.net
15.06.05 - 11:46
Hafliði Breiðfjörð

Scott Parker til Newcastle (Staðfest)

Scott Parker til Newcastle (Staðfest)
Canon
Newcastle United hafa staðfest að þeir séu að semja við Scott Parker miðvallarleikmann Chelsea. Þar með höfðu þeir betur í baráttu við Everton og Tottenham um leikmanninn sem er 24 ára gamall.
Parker hefur gengist undir læknisskoðun hjá Newcastle og búið er að samþykkja alla skilmála samnings. Talið er að helsta ástæða þess að Newcastle fékk leikmanninn sé sú að þeir voru tilbúnir að borga honum sömu laun og hann hafð ihjá Chelsea.

Parker kostaði Chelsea 10 milljónir punda fyrir 18 mánuðum síðan en kaupverðið nú er 6,5 milljónir punda. Hann verður kynntur opinberlega á blaðamannafundi félagsins klukkan 13:00 í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.