Sara Björk: Erum tilbúnar í leikinn
Auglýsing

Sara Björk á æfingu Íslands í gær.

Mynd: Hlmar Þór

Sara Björk á æfingu Íslands í gær.

Mynd: Hlmar Þór

,,Það er mjög góð stemmning, við fengum einum degi lengur núna og það hafa verið góðar æfingar og við erum tilbúnar í leikinn,\" sagði Sara Björk Gunnarsdóttir fyrirliði kvennalandsliðsins en liðið á leik gegn Dönum klukkan 11:00 í dag.
Leikurinn er liður í undankeppni Heimsmeistaramótsins 2015 en mikill hiti er í Danmörku núna. Er það verra fyrir Ísland?
,,Nei, mér finnst nú ekki það heitt,\" sagði Sara Björk. ,,Þetta eru bara toppaðstæður og erum bara komnar til að njóta en ekki til að kvarta.\"
Ísland er í öðru sæti riðilsins með níu stig, tíu stigum frá toppliði Sviss sem hefur leikið tveimur leikjum meira. Danir eru með 8 stig.
,,Það hentar okkur mun betur að mæta Dönum en Svíum og ef við spilum mjög agaðan varnarleik sem við ætlum að gera og það verður mikill kraftur í varnarleiknum þá munum við reyna að stoppa þær því þær eru góðar að halda bolta innan liðsins. Þega þær fá tíma á boltann geta þær búið til og skapað mikið, við ætlum a reyna að stoppa það.\"
Nánar er rætt við Söru Björku í sjónvarpinu að ofan.