Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
Bragi Karl: Var ekki í hlutverkinu sem ég vildi vera í
Ingi Þór: Engir grínleikmenn að spila í minni stöðu hjá ÍA
   mán 15. júní 2020 22:10
Kristófer Jónsson
Rúnar Páll: Martin fékk að hvíla í dag
Rúnar Páll og Óli Jó náðu í sín fyrstu þrjú stig í dag.
Rúnar Páll og Óli Jó náðu í sín fyrstu þrjú stig í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Páll Sigmundsson, annar af tveimur þjálfurum Stjörnunnar, var að vonum ánægður eftir 2-1 sigur sinna manna gegn Fylki í fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar í dag. Sigurmark Stjörnunnar kom í uppbótartíma.

„Það er alltaf sætt að skora svona í lokin og fá þrjú stig. Við vorum frábærir í leiknum og sýndum mikla yfirburði þrátt fyrir að hafa ekki byrjað leikinn." sagði Rúnar Páll eftir leikinn en Fylkismenn komust yfir þegar að um ein mínúta var liðin af leiknum.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  1 Fylkir

Ísak Andri reyndist vera hetja Stjörnumanna í dag en hann skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Ísak er fæddur árið 2003 og var þetta hans fyrsti leikur í Pepsi Max-deildinni.

„Það er virkilega gott þegar að leikmenn koma inn og láta til sín taka. Þetta er náttúrulega frábært fyrir hann að skora í sínum fyrsta leik og gott fyrir okkur."

Mikið hefur verið rætt um breidd Stjörnunnar þegar að kemur að miðvörðum og var Martin Rauschenberg ekki í leikmannahópi Stjörnunnar í dag.

„Björn Berg Bryde var í hóp í dag og Martin fékk að hvíla." sagði Rúnar aðspurður um stöðuna.

Nánar er rætt við Rúnar í spilaranum að ofan.
Athugasemdir
banner