Fotbolti.net
10.07.26 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Ásgeir Orri spáir í 13. umferð Lengjudeildarinnar

Ásgeir Orri Magnússon.

Ásgeir Orri Magnússon.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í kvöld hefst 13. umferð Lengjudeildar karla með fjórum leikjum. Ásgeir Orri Magnússon, sem hefur leikið frábærlega í marki Keflavíkur í sumar, spáir í leikina.
Tíu stærstu söluvörurnar í Bestu deildinni
TENGT EFNI

Tíu stærstu söluvörurnar í Bestu deildinni

Ægir 0 - 2 HK (19:15 í kvöld)
Þetta verður rólegur leikur þar sem HK verður mikið með boltann og Ægir liggja niðri í low block. Verður 0-0 i hálfleik en Ginger bullet brýtur ísinn, skorar tvö mörk og Svavar Örn með stoðsendingu.

ÍR 3 - 2 Þróttur R. (19:15 í kvöld)
ÍR-ingar hafa ekki farið vel af stað en hérna snúa þeir þessu við. Drillaðir Þróttarar mæta á grasið og verða í brasi. Minn maður Óliver Andri verður í gír og skorar 1 mark og verður með 2 stoðsendingar. Hann verður valinn maður umferðarinnar og Jóhann Birnir þjálfarinn.

Leiknir R. 0 - 0 Grótta (19:15 í kvöld)
Þetta verður alveg hundleiðinlegur leikur. Bæði lið verða í miklu brasi að finna sig í gegnum vörnina en Grótta brennir af vítaspyrnu.

Njarðvík 3 - 4 Grindavík (19:15 í kvöld)
Suðurnesjaslagurinn mikli. Þetta verður klárlega leikur umferðarinnar. Frítt inn á leik og er að búast við met mætingu á JBÓ-völlinn. Bæði lið mun spila í sérstökum treyjum til stuðnings Ingvari Jónssyni og það má einnig minna á styrktarsjóðinn hans. Símon Logi og Omar Diouck skora mörkin fyrir Njarðvík en það mun því miður ekki duga. Stebbi Frikk, Valli Konna og Rúnar Eysteins skora mörkin fyrir Grindavík. Það verður 3-3 þangað til að Stebbi Frikk af öllum mönnum stekkur upp og stangar hann inn úr hornspyrnu á 93 mínútu, rífur sig úr að ofan og fær seinna gula.

Völsungur 2 - 1 Afturelding (14:00 á morgun)
Þetta verður leikur sem er eftir að koma á óvart. Afturelding búnir að vera sterkir og á toppi deildarinnar en muna misstíga sig í þessum leik. Ferðalagið mun hafa einhver áhrif og mögulega eitthvað vanmat. Arnar Daði mun eiga góðan leik og bjargar þeim að þeir tapa ekki stærra.

Vestri 3 - 1 Fylkir (20:15 á mánudag)
Vestri mun mæta með sjálfstraust inn í þennan leik eftir Evrópuleikinn þrátt fyrir tap. Þetta verður besti leikur Vestramanna hingað til og muna þeir vinna Fylki. Minn maður Kári Fúsa mun leggja upp sárabóta mark fylkis á 80 mínútu.

Fyrri spámenn:
Sigurður Hrannar (4 réttir)
Baddi Borgars (3 réttir)
Amin Cosic (3 réttir)
Áki Sölva (2 réttir)
Alexander Rafn (2 réttir)
Andri Júl (2 réttir)
Kristófer Ingi (2 réttir)
Markús Páll (2 réttir)
Halli Hróðmars (2 réttir)
Dagur Orri (2 réttir)
Adam Páls (2 réttir)
ÍR mætir Þrótti í kvöld.

ÍR mætir Þrótti í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Grindavík mætir Njarðvík í nágrannaslag.

Grindavík mætir Njarðvík í nágrannaslag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ná Völlarar í óvæntan sigur?

Ná Völlarar í óvæntan sigur?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding12+1625
2Fylkir12+624
3Þróttur R.12+1223
4Vestri13+221
5Leiknir R.12+219
6HK12+119
7Njarðvík12+317
8Grótta11-416
9ÍR12-711
10Grindavík11-310
11Völsungur12-118
12Ægir13-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.