Fotbolti.net
10.07.26 - 14:28
Elvar Geir Magnússon

Senda frá sér yfirlýsingu vegna falsfrétta

Senda frá sér yfirlýsingu vegna falsfrétta
Canon

Mynd: EPA

Fótboltasamband Suður-Afríku hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar sem fór í dreifingu um að Hugo Broos væri hættur sem landsliðsþjálfari eftir þátttöku liðsins á HM.

Í tilkynningunni segir að Broos sé einfaldlega kominn í sumarfrí með fjölskyldu sinni og snúi svo aftur til starfa.
Broos er 74 ára Belgi sem hefur verið landsliðsþjálfari Suður-Afríku síðan 2021.

Í yfirlýsingu fótboltasambandsins segir að fréttaflutningur þess efnis að Broos hafi látið af störfum eigi ekki við nein rök að styðjast.

Suður-Afríka féll úr leik í 32-liða úrslitum á HM, eftir tap gegn Kanada.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.