Njarðvík og Grindavík í sérstökum Ingvars-treyjum í kvöld

Ingvar er uppalinn í Njarðvík.

Mynd: Njarðvík

Ingvar er uppalinn í Njarðvík.

Mynd: Njarðvík

Njarðvík fær granna sína í Grindavík í heimsókn í kvöld í Lengjudeildinni. Leikurinn verður styrktarleikur fyrir Ingvar Jónsson sem berst við krabbamein.
Bæði lið munu leika í sérstökum treyjum Ingvars til heiðurs. Á treyjunum má finna m.a. ártöl yfir hvenær Ingvar hefur orðið Íslands- og bikarmeistari.
Treyjur beggja liða munu fara á uppboð sem fer fram í einkaskilaboðum til Knattspyrnudeildar Njarðvíkur á Facebook þar sem allur ágóðinn rennur til styrktar Ingvari Jónssyni og fjölskyldu.
Uppboðið er hafið og lýkur á miðnætti á sunnudag.

Frítt verður á völlinn í boði Epoxy golf og Rafholt en stuðningsmenn eru hvattir til að bjóða í treyjur og/eða leggja Ingvari og fjölskyldu lið með að leggja inná eftirfarandi reikning:
Reikningsnúmer: 0147-05-400085
Kennitala: 710192-2359
Reikningsnúmer: 0147-05-400085
Kennitala: 710192-2359