Kristófer búinn að finna sér nýtt lið á Ítalíu

Verið lengi á Ítalíu.

Mynd: Triestina

Verið lengi á Ítalíu.

Mynd: Triestina
Kristófer Jónsson hefur yfirgefið Triestina og er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að ganga í raðir í raðir Reggiana á Ítalíu.
Reggiana féll úr Serie B í vor og mun því leika í ítölsku C-deildinni á komandi leiktíð.
Samningur Kristófers við Triestina féll úr gildi þegar félagið féll úr C-deildinni eftir að hafa endað í neðsta sæti A-riðils.

TENGT EFNI
Rússíbana tímabil hjá Kristófer: Ætluðum að skrifa söguna á Ítalíu
Kristófer, sem er fæddur árið 2003, er uppalinn í Haukum og var jafnframt á mála hjá Val hérlendis.
Hann var á láni frá Val hjá ítalska félaginu Venezia í tvö tímabil og lék með varaliðinu. Hann gekk síðan í raðir Triestina frá Val sumarið 2023 og var í þrjú tímabil með félaginu í ítölsku C-deildinni.