Fotbolti.net
10.07.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hefur komið að rúmlega marki að meðaltali í leik

Hefur komið að rúmlega marki að meðaltali í leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Kári Sigfússon (2002) hefur átt mjög gott tímabil með Fylki og er tölfræði hans þegar kemur að mörkum og stoðsendingum frábær.

Kantmaðurinn hefur komið með beinum hætti að 18 mörkum í 15 leikjum í sumar. Hann hefur skorað fjögur og lagt upp 14 í deild og bikar. Að meðaltali hefur hann komið að tæplega 1,3 marki að meðaltali í leik með beinum hætti.

Mörkin hafa komið gegn Vestra, Gróttu (2) og Grindavík. Stoðsendingarnir hafa komið gegn Ægi (4), Vestra, FH (3), ÍR, Leikni, Aftureldingu, Þrótti og Gróttu (2).

Fjórtánda stoðsendingin kom í síðasta leik gegn Ægi þegar hornspyrna hans rataði á Arnór Breka Ásþórsson fyrir utan teig Ægis og Breki þrumaði boltanum í markið.
Kári samdi við uppeldisfélagið sitt í vetur eftir að hafa verið valinn besti leikmaður Keflavíkur á síðasta tímabili.

Næsti leikur Fylkis verður gegn Vestra á útivelli á mánudagskvöld.
Hefur komið að rúmlega marki að meðaltali í leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.