Fotbolti.net
10.07.26 - 13:35
Innkastið

„Þeir tveir hafa verið stórkostlegir“

Spilandi framkvæmdastjóri.

Spilandi framkvæmdastjóri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eftir erfiða byrjun á tímabilinu, þar sem ÍBV vann ekki leik í fyrstu átta umferðunum, hefur liðið heldur betur snúið blaðinu við.

Liðið hefur safnað 13 stigum í síðustu fimm leikjum, sem er næstbesti árangur deildarinnar. Aðeins topplið Víkings hefur náð fleiri stigum í síðustu fimm umferðum.
„Linta virðist vera búinn að finna hvernig á að spila þessu liði. Síðan hefur Ari í markinu verið frábær. Það er allt annað að sjá uppspilið hjá þeim, mun betra en þegar Zapytowski var í markinu hjá þeim,“ sagði Valur Gunnarsson í Innkastinu.

Þá var þeim Alex Frey Hilmarssyni og Bjarka Birni Gunnarssyni sömuleiðis lofað í hástert.

„Þegar Alex Freyr kom inn í liðið byrjuðu Eyjamenn að vinna. Svo fara þeir í leik gegn Val á heimavelli þá skorar hann líka. Ef einhver var að pæla hver væri mikilvægasti leikmaðurinn þá var svarið þarna; spilandi framkvæmdastjórinn,“ sagði Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson tók orðið.

„Ef það er einhver sem á að gera atlögu að Alex sem mikilvægasti leikmaður liðsins þá er það Bjarki Björn sem var með stoðsendinguna. Þeir tveir hafa verið stórkostlegir undanfarið.“
Bjarki Björn verið frábær.

Bjarki Björn verið frábær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Áfall í Evrópusigri

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.17+4244
2Fram17+1437
3KR17+2236
4Breiðablik17+829
5Keflavík17-522
6Valur17-719
7ÍA17-819
8Stjarnan17-1118
9ÍBV17-916
10KA17-1115
11Þór17-2415
12FH17-1114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.