Fotbolti.net
05.07.26 - 21:01
Elvar Geir Magnússon

Quansah í hægri bakverði hjá Englandi

Quansah, 23 ára, er klár í slaginn eftir að hafa meiðst á ökkla gegn Panama.

Quansah, 23 ára, er klár í slaginn eftir að hafa meiðst á ökkla gegn Panama.

Canon

Mynd: EPA

Jarell Quansah mun byrja sem hægri bakvörður hjá enska landsliðinu gegn Mexíkó í kvöld en leikurinn hefst á miðnætti.

Hægri bakvarðarstaðan er helsta vandræðastaða Englands en Quansah fær það verkefni að mæta Julián Quinones sem hefur verið funheitur á vinstri kanti Mexíkó.
Englandi stafar mikil ógn af óvæntri hetju Mexíkó
TENGT EFNI

Englandi stafar mikil ógn af óvæntri hetju Mexíkó

Bukayo Saka og Anthony Gordon koma væntanlega inn í byrjunarliðið í stað Noni Madueke og Marcus Rashford.

Quansah, sem leikur fyrir Bayer Leverkusen, kemur inn fyrir Djed Spence sem fann fyrir vöðvaóþægindum.

BBC býst við að byrjunarlið Englands verði svona: Jordan Pickford; Jarell Quansah, Ezri Konsa, Marc Guehi, Nico O'Reilly; Declan Rice, Elliot Anderson; Bukayo Saka, Jude Bellingham, Anthony Gordon; Harry Kane.

Quansah, 23 ára, er klár í slaginn eftir að hafa meiðst á ökkla gegn Panama.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.