GAIS í viðræðum við Jóhann Berg

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Aftonbladet greinir frá því að sænska félagið GAIS sé að reyna að semja við Jóhann Berg Guðmundsson, sem er 35 ára gamall og samningslaus eftir að hafa leikið fyrir Al-Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á síðustu leiktíð.
Jóhann Berg hefur aldrei leikið í Skandinavíu áður en hann var lengst af hjá Burnley í enska boltanum, allt þar til fyrir tveimur árum þegar hann skipti til Sádi-Arabíu.
GAIS er í leit að nokkrum nýjum leikmönnum í sumar en Magnus Sköldmark, yfirmaður íþróttamála hjá félaginu, neitaði að tjá sig um einstaka leikmenn.
Jói Berg bar á dögunum fyrirliðabandið í vináttulandsleik gegn Mexíkó fyrr í sumar og hefur spilað 102 leiki á landsliðsferlinum. Hann var mikilvægur hlekkur á stórmótunum 2016 og 2018.
Róbert Frosti Þorkelsson er á mála hjá GAIS, sem er um miðja deild í Svíþjóð með 15 stig eftir 11 umferðir.