15.07.05 - 10:53
Hafliði Breiðfjörð
Vieira kominn til Juventus (Staðfest)

Franski landsliðsmaðurinn Patrick Vieira er genginn í raðir Juventus á Ítalíu en gengið var endanlega frá félagaskiptunum í dag eftir að leikmaðurinn samdi um kaup og kjör og komst klakklaust í gegnum læknisskoðun hjá félaginu.
Kaupverðið er 13,5 milljónir punda en leikmaðurinn flaug utan á þriðjudagskvöld til að ræða um kaup og kjör. Félagaskiptin voru svo staðfest nú í morgun eftir læknisskoðuna.
,,Vieira er búinn að skrifa undir og er ánægður með samninginn. ÞAð er búið að ganga frá öllu," sagði talsmaður félagsins.
Vieira var í níu ár á Highbury og með hann í liðinu unnnu þeir sjö stóra titla í heimalandinu. Hann er 29 ára gamall og taldi sig þurfa nýja áskorun á ferli sínum.