15.07.05 - 14:13
Hafliði Breiðfjörð
Biscan til Panathinaikos (Staðfest)

Biscan er farinn frá Liverpool


Biscan er farinn frá Liverpool

Igor Biscan miðvallarleikmaður Liverpool hefur gert þriggja ára samning við Panathinaikos í Grikklandi. Spartak Moskva höfðu einnig sýnt leikmanninum áhuga en hann valdi gríska liðið sem mun spila í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Biscan átti erfiðan tíma hjá Liverpool og sannaði sig í raun aldrei fyrr en á síðustu leiktíð sem varð hans síðasta. Hann var ónotaður varamaður í úrslitaleik Meistaradeildarinar gegn AC Milan sem Liverpool vann. Samningur hans rann svo út í lok leiktíðarinnar.
Hann lék alls 118 leiki fyrir Liverpool og skoraði í þeim þrjú mörk.
Hann lék alls 118 leiki fyrir Liverpool og skoraði í þeim þrjú mörk.
