15.07.05 - 14:19
Hafliði Breiðfjörð
Arteta til Everton (Staðfest)

Arteta skrifar undir samninginn

Arteta skrifar undir samninginn

Mikel Arteta varð í dag fjórðu kaup Everton í sumar en leikmaðurinn var keyptur á 2 milljónir punda frá Real Sociedad á Spáni. Arteta sem er 22 ára gamall kemur í kjölfar þeirra Simon Davies, John Ruddy og Per Kroldrup til Everton en liðið mun taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Hjá Everton gerir leikmaðurinn fimm ára samning sem hann skrifaði undir í dag og verður strax kominn í leikmannahópinnn sem mætir Motherwell í æfingaleik á Fir Park á morgun.
,,Ég er svo ánægður. Ég hef beðið í næstum tvo mánuði. Það hafa verið svo miklar vangaveltur um hvert ég væri að fara en í huga mér var það alltaf Everton."
,,Þess vegna hef ég verið að bíða og nú er ég svo ánægður því þetta er það sem ég vildi. Ég skrifaði undir fimm ára samning hérna og vil hjálpa liðinu að vaxa, leggja hart að mér og gera eitthvað mjög mjög gott á næstu leiktíð."