15.07.05 - 16:58
Magnús Már Einarsson
Luca Toni til Fiorentina (Staðfest)

Brynjar Björn Gunnarsson tæklar Toni.


Brynjar Björn Gunnarsson tæklar Toni.

Fiorentina hefur keypt ítalska sóknarmanninn Luca Toni frá Palermo á 10 milljónir evra. Toni sem er 28 ára hefur gert fjögurra ár a samning við Fiorentina en þessi ítalski landsliðsmaður hefur áður leikið með Vicenza og Brescia.
Hann skoraði 30 mörk þegar að Palermo komst upp í Serie A þarsíðustu leiktíð og á síðustu leiktíð skoraði hann 20 mörk í Serie A. Hjá Fiorentina mun hann mynda skemmtilega framlínu með hinum 19 ára Valeri Bojinov.
Fiorentina heldur því áfram að styrkja sig en liðið fékk Stefano Fiore að láni frá Valencia í vikunni og þá hefur liðið einnig fengið Giuseppe Pancaro frá AC Milan og Sebastien Frey frá Parma.
Fiorentina heldur því áfram að styrkja sig en liðið fékk Stefano Fiore að láni frá Valencia í vikunni og þá hefur liðið einnig fengið Giuseppe Pancaro frá AC Milan og Sebastien Frey frá Parma.
