15.07.05 - 17:36
Magnús Már Einarsson
Salva til Malaga (Staðfest)

Salva í leik með Malaga á sínum tíma.


Salva í leik með Malaga á sínum tíma.

Spænski framherjinn Salva Ballesta hefur gert fjögurra ára samning við Malaga. Salva sem er þrítugur kemur frítt til Malaga frá Valencia en hann hefur ekki náð sér á strik hjá síðarnefnda liðinu síðan hann var keyptur til þess árið 2001.
Salva var í láni hjá Bolton á sínum tíma og tímabilið 2003/2004 var hann einmitt í láni hjá Malaga frá Valencia og skoraði hann þá 19 mörk í La Liga.
Á síðustu leiktíð var hann í láni hjá Atletico Madrid og náði aðeins að skora sjö mörk en Salva hefur einnig leikið með Racing Santander á Spáni.
Á síðustu leiktíð var hann í láni hjá Atletico Madrid og náði aðeins að skora sjö mörk en Salva hefur einnig leikið með Racing Santander á Spáni.
