Fotbolti.net
15.07.05 - 18:01
Magnús Már Einarsson

Smertin til Charlton á láni (Staðfest)

Smertin til Charlton á láni (Staðfest)
Canon
Charlton hefur fengið rússnenska miðjumanninn Alexei Smertin að láni frá Chelsea. Smertin sem var í láni hjá Portsmouth á þarsíðasta tímabili lék aðeins 16 deildarleiki með Chelsea á síðustu leiktíð.
Smertin segist hafa fengið önnur tilboð en hann vildi vera áfram í London og því valdi hann Charlton. Smertin segir að Jose Mourinho hafi verið hissa á ákvörðun sinni og bætti jafnframt við að Mourinho gæti kallað sig til baka frá Charlton ef þess þyrfti.

Charlton hefur styrkt sig nokkuð í sumar en auk Smertin hafa Darren Bent, Darren Ambrose, Gonzalo Sorondo, Chris Powell, Kelly Youga og Jonathan Spector gengið til liðs við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.