Fotbolti.net
15.07.05 - 18:54
Magnús Már Einarsson

Bo Henriksen til Fram (Staðfest)

Bo Henriksen til Fram (Staðfest)
Canon
Eins og Fótbolti.net greindi frá á miðvikudag þá hefur danski sóknarmaðurinn Bo Henriksen gengið til liðs við Fram frá Val en þetta staðfesti fyrrnefnda liðið á heimasíðu sinni nú rétt í þessu.
Henriksen sem er fæddur árið 1975 lék lítið með Val en eini leikur hans í byrjunarliði var gegn Reyni Árskógsströnd í VISA-bikarnum þar sem hann skoraði tvö mörk. Hann kom einnig inná gegn Haukum í bikarnum.

Henriksen er víðförull leikmaður en seinast lék hann með B93 í Danmörku og skoraði hann 3 mörk í 9 leikjum fyrir liðið.

Henriksen lék með Odense 1995-1997 og skoraði þar 11 mörk í 33 leikjum. Þaðan fór hann til Herfølge og vann meðal annars dönsku Superliguna með þeim árið 2000. Hjá Herfølge skoraði Henriksen 14 mörk í 69 leikjum en hann lék meðal annars í Evrópukeppninni með liðinu þar sem mótherjarnir voru meðal annars Real Madrid, Glasgow Rangers og Parma.

Árið 2001 fékk gamla Liverpoolkempan Jan Mölby hann til liðs við Kidderminster Harriers og þar vann Henriksen hug og hjörtu aðdáenda liðsins með því að skora 30 mörk í 94 leikjum. Henriksen lék með Bristol frá 2004 og þangað til að hann fór til B93.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.