Bjarni Jó: Ef við verðum í þessari baráttu í september verð ég kátur
Auglýsing

Bjarni var því miður ekki með sólgleraugun í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Bjarni Jóhannsson þjálfari KA var kampakátur með 2-4 sigur sinna manna á Norðurálsvellinum nú í kvöld. KA eru þar af leiðandi komnir með 19 stig eftir fyrri umferð og búnir að blanda sér í toppbaráttuna.
,,Þetta var frábær leikur af okkar hálfu, mættum hér gríðarlega vel stemmdir og dugnaður út leikinn í gegn og uppskárum eftir því,\" sagði Bjarni í samtali við Fótbolta.net.
,,Við ákváðum það fyrir leikinn að stíga á þá og koma upp völlinn, ógna þeim svolítið þar, þriðja markið er algjörlega dæmi um það.\"
Aðspurður hvort það væri markmið félagsins að komast upp svaraði Bjarni:
,,Við erum þannig staddir í dag að við vöðum í hvern leik sem er og ef við verðum í þessari baráttu í september þá verð ég bara mjög kátur.\"
KA menn voru ekki lengi að landa fyrsta bitanum sínum á félagsskiptamarkaðnum í gærkvöldi.
,,Jájá við vorum snöggir að því, gerðum þetta fyrir miðnætti í gær fengum leikmann, Edin Besilja, og svo erum við bara að skoða okkar mál,\" sagði léttur Bjarni Jóhannsson að lokum.