Fotbolti.net
15.08.25 - 21:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Salah brotnaði niður í leikslok - „Ótrúlega sorglegt"

Salah brotnaði niður í leikslok - „Ótrúlega sorglegt"
Canon

Mynd: EPA

Það var tilfinningaþrungin stund á Anfield í kvöld. Liverpool hóf titilvörnina á sigri gegn Bournemouth.

Diogo Jota og bróðir hans Andre Silva létust í bílslysi í síðasta mánuði og þeirra var minnst í kvöld. Mohamed Salah innsiglaði 4-2 sigur liðsins með marki í uppbótatíma.
England: Liverpool hóf titilvörnina á sigri
TENGT EFNI

England: Liverpool hóf titilvörnina á sigri

Hann var með tárin í augunum þegar hann fagnaði sigrinum með stuðningsmönnum liðsins í kvöld.

„Maður sér miklar tilfinningar frá Salah. Svona verður þetta fyrir starfsfólk og stuðningsmenn Liverpool á tímabilinu. Það mun koma yfir þau á ákveðnum augnablikum, í leikjum, í lok leikja, eftir sigra og töp, að þau munu ekki hafa liðsfélagann og samstarfsfélagann sem þau elskuðu," sagði Gary Neville hjá Sky Sports.

„Þetta er ótrúlega sorglegt og það sem við sáum frá Mo Salah er mjög sérstakt."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.