Fotbolti.net
15.10.18 - 21:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Raggi Sig: Önnur augnablik sem voru hættulegri

Auglýsing
Ragnar að störfum í kvöld.

Ragnar að störfum í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Við byrjuðum leikinn frekar illa en svo er þetta jafn leikur," sagði Ragnar Sigurðsson, varnarmaður íslenska landsliðsins, eftir 2-1 tap gegn Sviss í Þjóðadeildinni í kvöld.

Tapið gerir það að verkum að Ísland er fallið úr A-deild Þjóðadeildarinnar.
„Fyrra mark þeirra kemur upp úr engu. Svo skora þeir annað ódýrt mark. Við vorum óheppnir að jafna ekki í endann. Við áttum fullt af færum."

Ragnar var ekki viss um hvað gerðist þegar Sviss komst í 1-0.

„Ég veit það ekki, ég þarf að sjá þetta aftur. Mér finnst ekkert vera í gangi, svo kemur góð fyrirgjöf og góður skalli. Það voru önnur augnablik í leiknum sem voru mun hættulegri og það kom ekkert út úr þeim. Þetta var skellur."

„Síðustu tveir leikir hafa verið nokkuð góðir og við áttum meira skilið út úr þeim báðum. Við getum byggt á þessu."

VIðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.