Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
   þri 15. október 2019 18:13
Elvar Geir Magnússon
Víkingsvelli
Patrik: Er að taka mjög hröðum framförum
Patrik Sigurður Gunnarsson.
Patrik Sigurður Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Patrik Sigurður Gunnarsson, markvörður U21 landsliðsins, var sáttur og sæll eftir frábæran 1-0 sigur gegn Írlandi á Víkingsvelli í dag.

Lestu um leikinn: Ísland U21 1 -  0 Írland U21

„Við vorum hungraðir og graðir í að svara fyrir þetta 5-0 tap fyrir Svíum. Við sýndum nákvæmlega hvað við getum þegar við vinnum saman sem lið," segir Patrik.

„Við áttum fyllilega skilið að vinna þennan leik, við vorum á fullu allan leikinn."

Patrik hefur fengið mikið lof á Englandi þar sem hann er samningsbundinn Brentford og leikur með varaliði félagsins. Hann er mikið efni og var spurður hvort hann væri ekki að taka hröðum framförum?

„Jú mjög hröðum. Sérstaklega þegar ég horfi á síðasta árið. Ég var verðlaunaður með nýjum samning. Ég er með traust þarna og nú er bara að halda áfram."

Sjáðu viðtalið í heild sinni
Slapp
banner