Fotbolti.net
14.10.26 - 08:39
Elvar Geir Magnússon

Heim til að lægja öldurnar

Samantekt

Hilmir snýr heim.

Hilmir snýr heim.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er pottþétt fullt af fólki sem vill fá mig til baka í Stjörnuna, síðan fullt af fólki sem vill það ekki, það er bara eins og það er. Það er bara gaman að því að vera orðaður við þetta frábæra félag," sagði Rúnar Páll Sigmundsson við Fótbolta.net í ágúst þegar hann var spurður út í orðróm um að hann gæti tekið við Stjörnunni að nýju.

Í gær kom svo tilkynningin um að búið væri að semja við Rúnar um að hann tæki við stjórnartaumunum að nýju. Rúnar stýrði Stjörnunni 2014-2021 og er goðsögn í Garðabæ eftir að hafa gefið stuðningsmönnum sínar bestu stundir; Íslandsmeistaratitil og magnað Evrópuævintýri.

Þegar Jón Þór Hauksson varð annar þjálfarinn til að vera rekinn frá Stjörnunni í sumar kom nafn Rúnars Páls strax til umræðu og í samantekt sem ég skrifaði stóð:

„Það er oft talin viss áhætta fyrir þjálfara að snúa til baka til félags þar sem þú naust mikillar velgengni en það er þokkalega langur tími liðinn sem gæti hjálpað. Hann gæti þó klárlega náð að lægja öldurnar og fengið klofinn stuðningsmannahópinn til að sameinast á ný."
Stormasamt á bak við tjöldin í Garðabæ
TENGT EFNI

Stormasamt á bak við tjöldin í Garðabæ

Stjörnubíó
Þetta hefur verið virkilega stormasamt tímabil í Garðabænum og hver höndin upp á móti annarri. Fjallað hefur verið um deilur bak við tjöldin, furðulegt andrúmsloft í klefanum og furðulegar ákvarðanir.

„Mig óraði ekki fyrir stöðunni sem var komin upp í klúbbnum. Það er öllum ljóst að það er mikil gjá á milli fólksins í Garðabæ, stuðningsmanna, leikmannahópsins og stjórnar. Það er mikil gjá á milli þessara hópa sem myndar að mörgu leyti eitrað andrúmsloft í félaginu," sagði Jón Þór í viðtali við RÚV eftir að hann var rekinn.

Rúnar Páll á að vera sameiningartáknið sem á að fylla upp í þessa gjá og lægja öldurnar hjá félaginu. En hann á að gera meira en það, miðað við yfirlýsingu Stjörnunnar í gær er metnaður stjórnarinnar meiri en að sigla lygnan sjó.

Vilja aftur í fremstu röð
„Innan knattspyrnudeildarinnar er mikill metnaður fyrir því að koma Stjörnunni aftur í fremstu röð íslenskrar knattspyrnu og berjast um titla. Jafnframt viljum við endurvekja þá einstöku stemningu sem hefur áður sameinað bæinn og efla samstöðuna sem býr í samfélaginu okkar í Garðabæ," segir í tilkynningu Stjörnunnar.

Rúnar Páll hefur gert frábæra hluti hjá Gróttu síðustu tvö ár en skrifaði undir nýjan samning nýlega. Það kæmi manni ekki á óvart ef sá samningur hafi verið með sérstaka 'Stjörnuklásúlu' fyrir hans félag.

Stjarnan tilkynnti aldrei um ráðningu á bráðabirgðaþjálfurunum þremur sem hafa stýrt liðinu að undanförnu og aftur á fólk að giska í eyðurnar eftir tilkynningu félagsins í gær. Ekkert er minnst á samningalengd eða hvort Rúnar muni stýra Stjörnunni í síðustu tveimur leikjum þessa tímabils. Það kemur vonandi betur í ljós í dag.

Fer Heimir í ÍA?
Heimir Guðjónsson var sterklega orðaður við Stjörnuna og hefði vafalítið verið annar góður kostur í að takast á við verkefnið stóra í Garðabænum. En núna þegar Rúnar Páll er mættur aftur þá er spurning hvar Heimir mun þjálfa næsta sumar?

Eftir að hafa mistekist að koma Fylki upp úr Lengjudeildinni í ár hafa verið virkilega háværar sögusagnir um endurkomu Heimis í Bestu deildina. Þjálfarakapallinn er farinn af stað og Heimir orðaður við ÍA og KA.

Slúðrað hefur verið um að Heimir hafi setið fund með Skagamönnum en óvíst er hvort Lárus Orri Sigurðsson verði áfram þjálfari þeirra gulu. Sú óvissa endurspeglaðist vel í viðtölum við hann og formanninn sem birtust í vikunni. Það færu allavega fáar hökur í gólfið ef Heimir yrði kynntur á fréttamannafundi á Akranesi á næstu vikum.
Rúnar gerði Stjörnuna að Íslandsmeistara 2014.

Rúnar gerði Stjörnuna að Íslandsmeistara 2014.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar hefur gert góða hluti hjá Gróttu síðustu tvö ár.

Rúnar hefur gert góða hluti hjá Gróttu síðustu tvö ár.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heim til að lægja öldurnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heim til að lægja öldurnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tekur Heimir Guðjónsson við ÍA?

Tekur Heimir Guðjónsson við ÍA?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.