Fotbolti.net
14.10.26 - 10:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Rúnar Páll stýrir ekki Stjörnunni í síðustu leikjunum

Rúnar Páll Sigmundsson.

Rúnar Páll Sigmundsson.

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Það var tilkynnt í gærkvöldi að Rúnar Páll Sigmundsson væri nýr þjálfari Stjörnunnar.

Rúnar Páll er gríðarlega hátt skrifaður hjá félaginu en hann gerði Stjörnuna að Íslandsmeistara 2014 og bikarmeistara 2018.
Rúnar Páll tekur við Stjörnunni (Staðfest)
TENGT EFNI

Rúnar Páll tekur við Stjörnunni (Staðfest)

Stjarnan hefur átt erfitt tímabil og tveir þjálfarar voru látnir taka pokann sinn í sumar; fyrst Jökull Elísabetarson og síðan Jón Þór Hauksson. Síðustu leiki hafa þriggja til fjögurra manna teymi séð um að þjálfa liðið til bráðabirgða.

Það eru tveir leikir eftir í Bestu deildinni en Rúnar mun ekki stýra liðinu í þessum leikjum. Hann er þess í stað farinn að horfa til næsta sumars.

Fréttamannafundur verður haldinn síðar í vikunni hjá Stjörnunni til að kynna Rúnar aftur til starfa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.