Kári Árna.: Ólafur Ingi hélt okkur inn í leiknum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Árnason stjórnaði vörn Íslendinga eins og herforingi ásamt Ragnari Sigurðssyni í kvöld. 0-0 jafntefli á heimavelli gegn Króatíu í fyrri leik liðanna í umspili fyrir HM í Brasilíu 2014.
,,Við erum einum manni færri hálfan leikinn. Það er frábært að ná 0-0 eftir á að hyggja,\" sagði Kári Árnason sem vildi lítið tjá sig um spænska dómarann sem íslenska liðið var ekkert alltof ánægt með og fleiri til.
,,Það hallaði á okkur. Það er ljóst en getur maður ekki lent í veseni ef maður er að setja út á dómarana?.\"
Kári var ánægður með varnarleik liðsins í leiknum og ánægður að halda Króötum svo fjarri markinu lengi vel.
,,Þeir sköpuðu sér ekki mörg færri. Mér fannst við aldrei vera í neinum vandræðum. Ef maður lítur af þeim í eina sekúndu þá eru þeir hættulegir og það gerðist einu sinni þegar þeir fengu aukaspyrnu fyrir utan teiginn en ekkert meira en það,\" sagði Kári sem er spenntur fyrir næsta leik og telur Ísland eiga enn mikla möguleika.
Það er hálfleikur.\"
Kári hafði þetta að segja um atvikið þegar Ólafur Ingi var rekinn af velli á 49.mínútu leiksins.
,,Þetta var eitthvað sem hann varð að gera. Hefði Ólafur sleppt honum í gegn þá hefði hann líklega skorað og þá hefði verið á brattann að sækja. Í rauninni heldur hann okkur inn í þessu en ég þarf að sjá atvikið aftur, ég veit ekki hvort þetta hafi verið rautt spjald eða hvað,\" sagði Kári að lokum.
Viðtalið í heild sinni er í sjónvarpinu hér að ofan.