Fotbolti.net
16.01.21 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu fagnið hjá Maddison: Snerti ekki liðsfélagana

Sjáðu fagnið hjá Maddison: Snerti ekki liðsfélagana
Canon

Mynd: Getty Images

James Maddison skoraði fyrra mark Leicester í 2-0 sigri gegn Southampton í síðasta leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.
Leikmönnum er bannað að snertast í fagnaðarlátum til að sporna við útbreiðslu Covid veirunnar og hefur sú regla verið gagnrýnd harðlega undanfarið.

Leikmenn þurfa þó að sætta sig við hana og var fagn Maddison í kvöld umtalað. Hann fylgdi reglum og snerti ekki samherjana.

Markið og fagnið má sjá með að smella hér.

Leicester er í öðru sæti úrvalsdeildarinnar sem stendur, einu stigi eftir toppliði Manchester United sem á leik til góða gegn Englandsmeisturum Liverpool á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.