Fotbolti.net
16.02.14 - 19:38
Magnús Már Einarsson

Bjarni Guðjóns: Einn af okkar betri leikjum

Auglýsing
Bjarni Guðjóns: Einn af okkar betri leikjum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Guðjónsson, þjálfari Fram, var sáttur með 4-3 sigurinn gegn gömlu félögunum í KR í Reykjavíkurmótinu í dag.
Markalaust var í leikhléi en fjörið hófst heldur betur í þeim síðari og höfðu Bjarni og hans menn betur.

„Mér fannst fyrri hálfleikurinn fínn að mörgu leiti. Við sköpuðum kannski ekki mörg opin færi, en hann gekk ágætlega. Það var skemmtilegra hins vegar fyrir þá sem voru að horfa á að fá öll þessi mörk í seinni hálfleiknum,“ sagði Bjarni við Fótbolta.net.

,,Eins og ég er búinn að segja áður, þá er þetta undirbúningur fyrir sumarið. Það að við vinnum núna hefur kannski ekki mikið að segja, annað en að þetta er góður undirbúningur og menn eru að leggja sig fram og fara eftir fyrirmælum, og reyna að vinna í rétta átt. Það er það sem er skemmtilegt við þessa sigra.“

„Þetta var sennilega einn af okkar betri leikjum fyrir utan eitt til þrjú varnarmistök. En annars var þetta mjög fínn leikur, við vorum þéttir til baka og pressuðum vel, þetta gekk fínt.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.