Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 10:05
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
„Set ekkert út á þennan verðmiða fyrir svona leikmann“
Ívar Örn er á leið í Kópavoginn.
Ívar Örn er á leið í Kópavoginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í leik gegn Breiðabliki í fyrra.
Í leik gegn Breiðabliki í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ívar Örn Árnason er á leið í til Breiðabliks frá KA. Hann var ekki í leikmannahóp KA gegn Víkingi í Lengjubikarnum í gærdag og hefur verið mikið rætt um væntanleg skipti.

Breiðablik hefur lengi haft augastað á miðverðinum og reyndi að kaupa hann fyrir rúmu ári síðan en greint var frá því að KA hafnaði þá 18 milljón króna tilboði.

Nú eru sögusagnir uppi um að kaupin gangi í gegn fyrir um 15 milljónir króna. Samningur Ívars við KA rennur út eftir komandi tímabil.

Rætt var um væntanleg félagaskipti hans í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag.

„Er ég á villigötum þegar ég segi að Ívar sé næstbesti leikmaður KA? Hallgrímur Mar er besti maður liðsins og það þarf ekki að ræða það frekar. Jafnvel á meðan Birnir Snær var í liðinu hefði ég sett Ívar í annað sætið, að minnsta kosti þegar kemur að mikilvægi hans fyrir liðið“, segir Tómas Þór og heldur áfram.

„Þetta eru eðlileg og skynsamleg kaup hjá Blikum. Hann býr yfir mikilli reynslu og er alvöru leikmaður. Víkingur reyndi líka að fá hann fyrir einhverju síðan.“

„Það hafa heyrst sögusagnir um 15 milljóna króna verðmiða. Hann á eitt ár eftir af samningi og Blikar hafa greinilega skoðað þetta vel. Þeir þurfa miðvörð og ef þeir fara ekki í Ívar þurfa þeir að leita jafnvel út fyrir landsteinana. Er þá ekki skynsamlegra að fá íslenskan miðvörð sem þekkir deildina og menn vita nákvæmlega hvað þeir fá?“ Segir Elvar Geir.

„KA menn vita líka upp á krónu hvað er inn á bankabókinni hjá Breiðabliki eftir Sambandsdeildina. Ég set ekkert út á þennan verðmiða fyrir leikmann af þessum gæðum. Hann er reynslumikill, hefur verið fyrirliði og leiðtogi hjá KA. Hann yrði mikill missir fyrir félagið,“ segir Tómas Þór.

Elvar tekur þá til máls: „Þeir vilja ekki missa hann og sögur hafa verið á kreiki um að KA menn hafi haft samband við Damir Muminovic þegar málið var að þróast til að kanna stöðuna.
Athugasemdir
banner
banner