City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 21:31
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikar kvenna: Blikar í undanúrslit eftir stórsigur á Fram
Kvenaboltinn
Hrafnhildur Ása skoraði tvö og kom Blikum í undanúrslit
Hrafnhildur Ása skoraði tvö og kom Blikum í undanúrslit
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram 0 - 4 Breiðablik
0-1 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('11 )
0-2 Emma Kate Young ('41 , Own goal)
0-3 Karitas Tómasdóttir ('48 )
0-4 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('75 )

Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks eru komnar áfram í undanúrslit A-deildar Lengjubikarsins eftir að hafa unnið 4-0 stórsigur á Fram á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í kvöld.

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir braut ísinn fyrir Blika á 11. mínútu og kom annað markið undir lok fyrri hálfleiks er Emma Kate Young stýrði boltanum í eigið net.

Karitas Tómasdóttir bætti við þriðja markinu í upphafi síðari hálfleiks áður en Hrafnhildur Ása rak síðasta naglann í kistu Framara stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Blikar eru á toppi B-riðils með 9 stig, mest allra liða og svo gott sem búið að tryggja toppsætið. Undanúrslitasætið er tryggt og verður það líklega Víkingur sem mun fara með þeim þangað.

Víkingur er í öðru sæti með 6 stig en liðið mætir ÍBV í lokaleik riðilsins.
Stöðutaflan Ísland Lengjubikar kvenna
  L U J T ms: mf: mun Stig
Athugasemdir
banner