Fotbolti.net
16.04.26 - 17:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hin hliðin - Bergvin Fannar Helgason (ÍR)

Hin hliðin - Bergvin Fannar Helgason (ÍR)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Bergvin Fannar er uppalinn ÍR-ingur og hefur spilað með liðinu allan sinn feril. Hann er framherji sem skoraði átta mörk í 19 leikjum í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.

Sóknarmaðurinn hefur samkvæmt Transfermarkt skorað 22 mörk í 79 leikjum í deild og bikar. Í fyrra var hann á bekknum í liði ársins í Lengjdeildinni. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 8. sæti
TENGT EFNI

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 8. sæti

Fullt nafn: Bergvin Fannar Helgason

Gælunafn: Úff hvar á ég að byrja. Ætli þau sem eru ekki notuð mest núna séu Poison og Björgvin Hrannar

Aldur: 23 ára

Hjúskaparstaða: Er í sambandi

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Minnir að fyrsti leikurinn minn hafi verið 2018 eða 2019 á móti KFG. Var geðveikt stressaður og fékk hlaupasting eftir 5 mínútur, ennþá verið að gera grín af mér fyrir þetta

Uppáhalds drykkur: Það er alltaf malt í gleri, lykilatriði að það sé í gleri

Uppáhalds matsölustaður: Serrano eða Tokyo sushi

Uppáhalds tölvuleikur: Spila svo sem ekki mikið en ætli það sé ekki bara COD

Áttu hlutabréf eða rafmynt: Já maður á einhver hlutabréf

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Allt sem Auddi og Sveppi hafa verið í

Uppáhalds tónlistarmaður: Magnificent og Ingó eru frábærir

Uppáhalds hlaðvarp: Blökastið, Drfootball eða Chess after dark

Uppáhalds samfélagsmiðill: Er alltof mikið á TikTok þessa dagana

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Það er líklega Uglan til að tékka í hvaða tíma ég er að fara í þann daginn

Fyndnasti Íslendingurinn: Sveppi

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: "Hvenær kemuru" frá konunni

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Aldrei mun ég spila með Leikni

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Það er alltaf Sveinn Gísli vinur minn, galið hvað hann hefur spilað lítið síðustu ár

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Jóhann Birnir

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Frændi minn hann Kristján Atli Marteinsson á æfingum er oft gífurlega krefjandi

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Wayne Rooney

Sætasti sigurinn: Það er alltaf þegar við unnum KFA þegar við komumst upp úr 2. deildinni þegar við vorum komnir 2-0 undir eftir 15 mín en unnum svo leikinn 4-2 þar sem minn maður Hrafn Hallgríms steig upp og kom okkur yfir í þeim leik

Mestu vonbrigðin: Þegar við misstum af playoffs síðasta sumar

Uppáhalds lið í enska: Manchester United

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Það væri annað hvort að sameina brósana á ný og fá Óliver Elís og Róbert Elís Hlynssyni aftur heim eða að fá Múgison (Óliver Úlfar) vin minn frá Ými

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Það er alltaf brósi, Róbert Elís Hlynsson

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Mágur minn hann Eiður Gauti með mottuna er hrikalega kynæsandi

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Eru þær ekki allar flottar bara

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: CR7

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Þessar nýju reglur sem eru að mæta er held ég bara þvæla

Uppáhalds staður á Íslandi: Breiðholtið er staðurinn til að vera á

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þetta er ekki leikur sem ég spilaði en var að horfa á Léttismennina mína spila. Þar var minn uppáhalds fótboltamaður Múgison að spila á móti Mídas held ég. Það gekk ekkert sérstaklega hjá mínum mönnum í þeim leik þegar Múgison vinur minn ákvað að sparka í haminn á einhverjum leikmanni Mídas, svo þegar ég spurði hann hvers vegna í ósköpunum hann ákvað að gera þetta þá var það vegna þess að hann var með svo lélega hárgreiðslu. Það fannst mér soldið spes

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei svo sem ekki

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já fylgist með nánast öllum íþróttum en þó helst golfi, körfu og handbolta

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Ekki hugmynd

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Ætli það hafi ekki bara verið Íslenskan

Vandræðalegasta augnablik: Dettur ekkert í hug þarna

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Þessi er gífurlega erfið, það eru allt of margir sem koma upp í hugann. Ég verð bara að fá að taka 4 leikmenn það eru Múgison, Hlynsson bræðurnir og Sveinn vinur minn

Bestur/best í klefanum og af hverju: Það eru margir sem gera tilkall í þennan. En ég ætla að velja Óliver Andra útaf því hann er svo mikil dúlla

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Ég myndi alltaf vilja fá Óliver Andra Einarsson í Love Island þar sem hann er búinn að vera að reyna að finna sér kærustu, þannig ef þið stelpur hafið áhuga þá endilega bara heyra í honum

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Get sett 43 arkir af eldhúspappír upp í mig í einu

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: My Captain Ágúst Unnar, vissi ekki að hann væri svona harður

Hverju laugstu síðast: Það var örugglega eitthvað gífurlega ómerkilegt

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Upphitun er líklega það leiðinlegasta sem ég geri

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Bara haldið áfram að vera bestu stuðningsmenn landsins
Yngri brósi.

Yngri brósi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eldri brósi.

Eldri brósi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hugguleg motta.

Hugguleg motta.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óliver Andri (í svörtu) dúlla í leit að kærustu.

Óliver Andri (í svörtu) dúlla í leit að kærustu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óvænt harður.

Óvænt harður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kallar eftir því að Sveinn Gísli spili meira.

Kallar eftir því að Sveinn Gísli spili meira.

Canon

Mynd: Víkingur - Hörður Ágústsson

Frændi krefjandi á æfingum.

Frændi krefjandi á æfingum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.