Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   lau 16. maí 2026 14:32
Brynjar Ingi Erluson
Fyrirliðinn á förum frá Real Madrid
Mynd: EPA
Dani Carvajal, fyrirliði Real Madrid, mun yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í sumar. Athletic greinir frá þessum tíðindum í dag.

Carvajal er 34 ára gamall hægri bakvörður sem hefur verið á mála hjá Real Madrid frá 2002, fyrir utan stutt stopp hjá Bayer Leverkusen frá 2012 til 2013.

Samningur hans rennur út eftir tímabilið og stendur ekki til að framlengja við leikmanninn.

Athletic segist hafa heimildir fyrir því að Carvajal sé meðvitaður um ákvörðun Real Madrid.

Carvajal hefur verið að glíma við meiðsli á þessari leiktíð og misst sæti sitt til enska bakvarðarins Trent Alexander-Arnold sem kom til Real Madrid frá Liverpool á síðasta ári.

Mikill áhugi er frá Sádi-Arabíu og löndunum þar í kring, en það er þó mjög flókið vegna spennu á svæðinu.

Spánverjinn hefur unnið 26 titla á tíma sínum hjá Real Madrid og var þá fyrirliði spænska landsliðsins sem vann EM fyrir tveimur árum.
Slapp
banner
banner