Jose Mourinho verður næsti þjálfari Real Madrid á Spáni en þetta fullyrðir Fabrizio Romano á X.
Portúgalinn hefur verið í viðræðum við Madrídinga síðustu vikur og hefur hann nú gefið grænt ljós á að taka aftur við liðinu.
Mourinho, sem er samningsbundinn Benfica út næsta tímabil, er með riftunarákvæði í samningnum sem hann ætlar sér að nýta.
Hann tók við Real Madrid árið 2010 og vann þrjá titla áður en hann var rekinn þremur árum síðar.
Síðustu vikur hefur hann rætt við Real Madrid um mögulega endurkomu í þjálfarastólinn og er hann skrefi nær því að taka við félaginu í annað sinn. Romano segir skiptin nánast frágengin á meðan Ornstein segir viðræðurnar komnar langt á veg.
Mourinho er sagður spenntur fyrir því að snúa aftur til Real Madrid sem hann lítur á sem óklárað verkefni.


