16.06.05 - 11:42
Hafliði Breiðfjörð
Diouf samdi við Bolton (Staðfest)

Senegalinn El-Hadji Diouf hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Bolton Wanderers en kaupverðið á leikmanninum frá Liverpool hefur ekki verið gefið upp. Diouf skoraði níu mörk fyrir Bolton á leiktíðinni en hann var á láni frá Liverpool.
,,Hann hefur hæfileika til að verða ein af mikilvægustu kaupum okkar á þessu tímabili. Á síðustu leiktíð kynntumst við honum. Við gefum honum það sem hann þarf til að verða einn af bestu framherjum Evrópu," sagði Sam Allardyce stjóri Bolton.
Diouf var keyptur til Liverpool frá Lens í Frakklandi á 11 milljónir punda eftir HM 2002 en náði aldrei að sanna sig á Anfield. Hann náði hinsvegar frábærri leiktíð með Bolton og varð á endanum markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu.