Fotbolti.net
16.06.05 - 13:53
Magnús Már Einarsson

Ricardo til Osasuna (Staðfest)

Ricardo til Osasuna (Staðfest)
Canon
Markvörðurinn Ricardo sem yfirgaf herbúðir Manchester United fyrr í vor hefur gert tveggja ára samning við spænska liðið Osasuna. Ricardo sem er 33 ára var í þrjú ár hjá Manchester United en náði aldrei að festa sig í sessi.
Osasuna ætlar ekki að framlengja samning sinn við Ricardo Sanzol og því mun Ricardo berjast við Juanxto Elia um sæti í byrjunarliðinu. Osasuna endaði í 15.sæti í La Liga en tryggði sér sæti í Evrópukeppni Félagsliða með því að komast í úrslitaleikinn í spænska bikarnum. Real Betis sem sigraði Osasuna í úrslitaleiknum fer í Meistaradeildina og því fær Osasuna Evrópusætið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.