Fotbolti.net
16.06.17 - 22:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skrifar frá: Gaman Ferða vellinum

Edda Garðars: Myndi velja hana ef ég væri landsliðsþjálfari

Auglýsing
Edda var sátt með sigurinn.

Edda var sátt með sigurinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Þetta var leikur sem var í járnum allan tímann, en við mættum af krafti í seinni hálfleikinn og vorum mun hættulegri,\" sagði Edda Garðarsdóttir, þjálfari KR, eftir 2-0 sigur gegn Haukum í kvöld.

KR hoppar upp úr fallsæti í Pepsi-deild kvenna með þessum sigri. Þær eru núna með sex stig eftir tvo sigra í röð og stefna hærra í framhaldinu.
„Þetta var virkilega flottur og sætur sigur í kvöld.\"

Haukarnir voru hættulegir í fyrri hálfleiknum, en seinni hálfleikurinn var eign KR. Hvað sagði Edda við sínar stelpur í hálfleik?

„Við þurftum fyrri hálfleikinn til þess að vakna, ná okkar level-i, en ég veit ekkert hvað ég sagði, bara vandið ykkur, verið skynsamar og spilið betur,\" sagði hún í viðtali eftir leikinn.

Hólmfríður Magnúsdóttir er byrjuð að spila aftur með KR og það er mikilvægt fyrir liðið. Hún var á skotskónum í kvöld.

„Hún er hörkudugleg og mjög vinnusöm. Hana dreymir um að komast á EM í Hollandi.\"

Hvernig metur Edda möguleika fyrir Hólmfríði á að komast til Hollands í næsta mánuði?

„Ef ég væri landsliðsþjálfarinn þá myndi ég velja hana. Ég get samt ekki svarað fyrir Frey Alexandersson,\" sagði Edda létt.

Edda var spurð út í dómgæsluna.

„KSÍ er kannski ekki að senda sína sterkustu menn, en þeir sem eru næst-sterkastir þeir þurfa að fá þessa reynslu og fá þessa leiki. Ég er hætt að pirra mig á þessu.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Hólmfríður ætlar sér á EM.

Hólmfríður ætlar sér á EM.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.