Fotbolti.net
22.07.26 - 16:35
Elvar Geir Magnússon

Olise vill ekki hitta dóttur sína og neitar að greiða meðlag

Michael Olise í leik með Frökkum.

Michael Olise í leik með Frökkum.

Canon

Mynd: EPA

Þýsk kona sem heitir Fatima Zonbrischer hefur stigið fram í fjölmiðlum og segist eiga 20 mánaða stúlku með franska landsliðsmanninum Michael Olise hjá Bayern München.

Hún segir að Olise vilji ekki vera í sambandi við dóttur sína, hafi aldrei hitt hana og neiti að greiða meðlag.
Fatima segir að samskipti hennar og Olise hafi hafist á Instagram 2022 og þau hafi verið í fjarsambandi í um tvö ár. Stuttu eftir að þau hættu samskiptum hafi hún uppgötvað að hún væri ólétt og faðernispróf hafi staðfest að hann væri pabbinn.

Hún segir að sambandi þeirra hafi lokið þar sem hún var ósátt við hve miklum tíma hann eyddi í tölvuspil og þá hefði hann einnig verið í sambandi við aðra konu.

Olise var stoðsendingakóngur nýliðins heimsmeistaramóts en hann lagði upp sjö mörk.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.