Man Utd ætlar að bjóða Calvert-Lewin samning - Al Nassr á eftir Rodrygo - Chelsea fylgist með stöðu Nwaneri
Guðrún: Mikið af knúsum og ekki mikið af orðum
Cecilía: Leiðinlegt að hafa ekki gert meira fyrir þau
Karólína Lea: Það er langt síðan ég hef grenjað svona
Magnað viðtal við Glódísi - „Mun aldrei fyrirgefa mér það"
Ingibjörg meyr: Við ætlum að fokking vinna Noreg
Dagný: Ég hefði viljað ná að brjóta
Haddi: Ég skil ekki af hverju allir efast um Viðar
Ívar Örn: Það fer okkur mjög vel að spila hér í Laugardalnum
Grímsi: Vonandi er stíflan brostin sem ég er búinn að vera að glíma við
Óskar Hrafn: Ekkert grín að vera með þrjá fullvaxta karlmenn sem fá að faðma þig
Á tvo fulltrúa í íslenska liðinu - „Átti alveg von á því að hún yrði í þessum sporum"
Þorgerður Katrín: Ég hef alveg upplifað það verra
Pabbi Karólínu: Hún hafði einhverja áru yfir sér
Goðsögnin Ásta B: Þetta eru bara heimsklassa leikmenn
Kærasti Glódísar: Eigum við ekki bara að segja að það komi í ljós?
„Erfiðara að horfa á börnin mín en þegar ég var sjálf að spila"
Hemmi Hreiðars: Rosalegur karakterssigur
Aðalsteinn Jóhann: Ég hef ekki hugmynd um það
Gylfi Þór: Vonandi verður þetta jákvætt í lok tímabilsins
Lárus Orri: Frekar fúllt að labba héðan í burtu með ekkert stig
   mán 16. júní 2025 21:59
Snæbjört Pálsdóttir
„Eiginlega bara drullað yfir okkur"
Kvenaboltinn
Ída Marín setti 2 mörk í kvöld
Ída Marín setti 2 mörk í kvöld
Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson

FH rúllaði yfir Tindastól 5-1 í Kaplakrika í 9. umferð Bestu deildarinnar í kvöld eftir að hafa verið undir 0-1 í hálfleik.

„Þetta er bara geggjað, við þurftum þú veist að klára þennan leik til að vera í toppbaráttunni og við gerðum það bara í seinni hálfleik, þannig ég er mjög stolt af liðinu og þetta er bara geggjað" sagði Ída Marín Hermannsdóttir eftir leik 


Lestu um leikinn: FH 5 -  1 Tindastóll

Líkt og áður sagði fór FH inn í hálfleikinn með 0-1 á bakinu, aðspurð hvort þær hefðu fengið sérstaka ræðu í klefanum svaraði hún „Já það var eiginlega bara drullað yfir okkur en hérna þannig á það bara að vera, við vorum bara hræðilegar í fyrri hálfleik og fengum líka pepp nottlega."

Ída setti tvö mörk í seinni hálfleik í algjörum viðsnúningi FH liðsins „Bara geggjað, já ég hérna elska að skora og bara gaman þannig ég já bara geggjað." 

Næsti leikur FH  og sá síðasti fyrir EM pásu verður gegn Val í Kaplakrika á laugardaginn kl. 14:00


Athugasemdir
banner