Vuk Oskar Dimitrijevic blómstrar hjá Fram og skoraði sitt sjötta deildarmark á tímabilinu í 2-0 sigri gegn FH í gær. Hann hefur skorað í fjórum leikjum í röð.
Vuk náði aldrei almennilegu flugi hjá FH en geislar af sjálfstrausti í treyju Fram. Sævar Atli Magnússon, leikmaður Brann, ólst upp með Vuk hjá Leikni í Breiðholtinu og tjáði sig um hann í útvarpsþættinum Fótbolti.net nýlega. Hann segir að Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, hafi náð því besta út úr Vuk.
Vuk náði aldrei almennilegu flugi hjá FH en geislar af sjálfstrausti í treyju Fram. Sævar Atli Magnússon, leikmaður Brann, ólst upp með Vuk hjá Leikni í Breiðholtinu og tjáði sig um hann í útvarpsþættinum Fótbolti.net nýlega. Hann segir að Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, hafi náð því besta út úr Vuk.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 0 FH
„Loksins segi ég bara. Rúnar Kristins er fullkominn fyrir Vuk. Stundum áttu lélega leiki en hann er gæi sem þarf að finna að hann er með traustið. Mér fannst það vera þannig hjá FH að ef hann átti einn eða tvo lélega leiki þá var hann kominn á bekkinn," segir Sævar.
„Vuk er orðinn miklu betri varnarmaður en hann var, hann vinnur rosa fyrir liðið og er byrjaður að skila mörkum og stoðsendingum. Hann er orðinn virkilega góður leikmaður í þessari deild og er farinn að spila betur og betur."
Okkar besti leikmaður
Brasilíumaðurinn Fred, sem spilar með Fram, sagði við mbl.is eftir sigurinn í gær að Vuk væri besti leikmaður liðsins.
„Að mínu mati er Vuk okkar besti leikmaður. Ég sagði Thiago í fyrra að við þurfum leikmann eins og Vuk í okkar lið. Okkur vantaði kantmann sem ræðst á bakverði sem gerir okkar vinnu auðveldari,“ sagði Fred.
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, sagði eftir leikinn samgleðjast Vuk en sagðist ekki sjá eftir honum.
„Ég er ánægður með að Vuk gangi vel. Sé ég eftir honum? Nei - hann var búinn að vera í fjögur ár í FH og undir handleiðslu margra frábærra þjálfara en það náði enginn að ná því besta út úr honum. Það er jákvætt fyrir hann að hann sé að standa sig hér,“ sagði Heimir við mbl.is.
Athugasemdir